Október 2025
Þetta er í fyrsta skiptið sem Prótó er haldið.
Það voru 83 skráningar og mjög fjölbreyttar hugmyndir litu dagsins ljós.
Bækur
Ingimundur Arnar Ólafsson
Viðtals- og fræðslubók um það starf að vera íslenskur jólasveinn, með grunnatriðum sem gott er að hafa í huga þegar maður byrjar að leika jólasvein, miðlun/viðtöl við aðstoðarmenn og fleira.Að vera íslenskur jólasveinn, miðlun sérfræðinga, fræðsla og fleira

Bryndís Erna Thoroddsen
Bók sem er bæði sögubók og dagbók sem kennir sjálfsást og í leiðinni geymir dýrmætar minningar þar sem ímyndunaraflið fær að blómstra. Bókin býður upp á síður til að skrifa drauma, lesa jákvæðar staðreyndir fyrir hvern dag, teikna tilfinningar, og finna sína innri töfra. Þetta yrði góð gjöf fyrir allan aldur og það væru mismunandi útfærslur eftir aldri.Sögubók/Dagbók með þrautum og uppbyggilegri sjálfsvinnu

Tónlist
Arnþór Birkisson
Pælingin er að búa til jólalag sem verður tilbúið fyrir jól, er búinn að vera að gera nokkur test og byrja á nokkrum hugmyndum en ekki alveg búinn að ákveða með þá lendingu, söngmelodía er hálfmótuð og einhverjar textahugmyndir byrjaðar að koma.Jólalag
Öpp
Sóldís Guðbjörg Ólafsdóttir
Auðvelt app sem hjálpar þér að finna rétta leið til að flokka og hvar þú getur flokkað. Einnig hægt að gefa eða selja hluti sem annars færu á Sorpu.Skoðaðu prótótýpuna í FigmaFlokkari




Sigrún Júnía
Hver kannast ekki við að vera með innkaupalistann á blaði og gleyma svo að taka blaðið með í búðina? Með appinu þá er innkaupalistinn í símanum þínum.Skoðaðu prótótýpuna í FigmaInnkaupalista app




Rúnar Vestmann
App fyrir knattspyrnudómara og mótshaldara
- Stjórnborð fyrir mótshaldara til að stofna leiki og "assign-a" dómara á hvern leik.
- App sem dómarar geta nýtt til að segja hvaða leiki þeir geta dæmt.

Vörur
Íris Dögg Jóhannesdóttir
Erfitt að loka kexpakkanum aftur þegar er bara búið að taka 1-2 kex úr. Það væri gaman að hafa alvöru matarkexbox. Þetta yrði þá box, með grind í botninum sem er hægt að snúa við eftir því hvort þú ert með hringlaga kex eða ferkantað, og svo er kexinu raðað í boxið!Box fyrir matarkex
